22.06.2010
09.06.2010
27.05.2010
22.02.2010
13.01.2010
22.12.2009
11.12.2009
24.11.2009
02.10.2009
07.07.2009
07.05.2009
09.03.2009
18.02.2009
07.02.2009
03.02.2009
22.01.2009
22.12.2008
15.12.2008
30.10.2008
29.10.2008
03.10.2008
05.09.2008
04.09.2008
03.09.2008
02.09.2008
28.08.2008
19.08.2008
12.08.2008
07.08.2008
21.07.2008
18.07.2008
19.06.2008
30.05.2008
16.05.2008
06.05.2008
05.05.2008
23.04.2008
09.04.2008
03.04.2008
03.04.2008
19.03.2008
07.03.2008
26.02.2008
22.02.2008
19.02.2008
14.02.2008
13.02.2008
12.02.2008
07.02.2008
02.02.2008

 

 


Bíðum spennt eftir að flytja inn í nýja húsið
13.01.2010

Við vorum eins og svo margir aðrir í þeirri stöðu að vera með eign sem við þurftum að selja áður en við gátum byrjað. Við náðum svo að selja hana í haust og byrjuðum þá að byggja húsið okkar í Leirvogstungu, segir Rúnar Þór Guðbrandsson. Rúnar og kona hans Hulda Sóllilja segja vera kjörinn tíma til að byrja að byggja núna ef fólk hefur fjármögnun. Hægt er að ná tiltölulega hagstæðum samningum, fólk er jákvætt og til í að gera hlutina á sem hagkvæmastan máta.
 
Breyttist skipulag hússins mikið eftir hrun?
Já, við hentum eiginlega gömlu teikningunum og byrjuðum aftur frá grunni. Við létum teikna einfaldara hús sem er mikið hagkvæmara en uppfyllir að öllu leyti það sem við viljum. Við erum eiginlega  bara ánægð með að hafa ekki verið farin af stað með hinar teikningarnar. 

 
Hvernig er húsið?
Húsið er 260 fermetrar með 30 fermetra gluggalausu rými sem notað er sem geymsla. Þetta er forsteypt einingahús frá BM-Vallá Smellinn. Við erum gríðarlega ánægð með það. Einingarnar eru allar steyptar innandyra við bestu mögulegu aðstæður þannig að veður er ekki eitthvað sem þarf að hugsa um í ferlinu. Það tók þrjá daga að reisa alla neðri hæðina á sökkli sem búið var að staðsteypa þannig að þetta er að því leytinu til mikill tímasparnaður. Húsið er í funkis stíl hannað af Agli Guðmundssyni arkitekt hjá Arkis. Við erum gríðarlega ánægð með alla sem eru með okkur í þessu. Útaf ástandinu var hópur iðnaðarmanna sem hafði verið að vinna á Leirvogstungusvæðinu búinn að mynda teymi sem vinnur á sem skynsamlegastan og hagkvæmastan máta fyrir þá sem eru að fara af stað. Við leituðum tilboða hjá mörgum og það var hagkvæmast að velja þá sem eru á staðnum. Þessir menn eru vanir aðstæðum og eru auk þess með öll tæki og tól á svæðinu. Ég mæli eindregið með því að ef fólk er að fara af stað í Leirvogstungu að leita ekki langt yfir skammt með að finna menn með sér. Það eru toppmenn á staðnum.
 
Vinnið þið mikið í þessu sjálf?
Við reynum að gera það sem við getum sjálf og svo fylgjumst við mjög vel með þannig að við tökum þátt í því sem verið er að gera. Það er miklu skemmtilegra að vera innviklaður í þetta og vera með á nótunum.
 
Þið eruð stofnmeðlimir í íbúasamtökunum en eruð að byrja að byggja núna. Þið hafið verið alveg harðákveðinn í að byggja á lóðinni þrátt fyrir kreppu?
Við keyptum lóðina sumarið 2007 og höfðum strax gríðarlega trú á hverfinu. Svo lentum við í að vera stopp út af ástandinu en við vorum ekki tilbúin að gefast upp og erum búin að vinna hörðum höndum að því að klára þetta verkefni. Við fórum í að stofna íbúasamtökin á sínum tíma af því að við lítum á þetta sem framtíðarhverfi. Íbúasamtökin berjast fyrir því að verkefnin stoppi ekki þrátt fyrir ástandið. Það er sameiginlegt verkefni allra sem búa í hverfinu að þetta verði gott framtíðarhverfi og samgöngur, þjónusta og umhverfi verði með besta móti. Auk þess er gaman að tengjast fólki sem er í svipuðum hugleiðingum og maður sjálfur og eitt af markmiðum íbúasamtakanna er að búa til enn betri anda í hverfinu.
 
Hvernig er fjölskyldan?
Við eigum þrjá stráka, 12 ára, sex ára og tæplega tveggja ára. Við stefnum að því að flytja inn í vor. Við ætlum að kýla þetta upp og drífa okkur upp eftir. Við bíðum öll spennt eftir að flytja í Leirvogstungu, strákarnir líka. Við erum hestafólk og elsti sonurinn spilar fótbolta. Hesthúsin eru beint fyrir neðan og fótboltavöllurinn líka þannig að þetta er kjörið dæmi fyrir okkur. Það er skemmtilegt að spá í að það eru fleiri börn sem búa í Leirvogstungu heldur en í Krikahverfinu í Mosfellsbæ, þrátt fyrir að það hafi farið fyrr af stað. Þetta er því frábær staður fyrir börn að alast upp og nóg af krökkum á svipuðum aldri.
 
Hafði hestamennskan áhrif á valið á hverfinu?
Já hún hafði auðvitað áhrif. Það er alveg frábært að vera svona nálægt hesthúsunum og svo er líka sumarbeit hestanna beint fyrir neðan hverfið, þannig að maður sér hesta út um gluggann á sumrin. Það sem hafði samt mest áhrif er að þegar við fórum að velta þessu fyrir okkur keyrðum við á alla staðina þar sem verið er að skipuleggja byggð og okkur þótti Leirvogstunga lang mest sjarmerandi. Hér er fallegt útsýni og hverfið er skipulagt með það í huga að ná upp góðum hverfisanda.

 



Til baka