|
22.06.2010 09.06.2010 27.05.2010 22.02.2010 13.01.2010 22.12.2009 11.12.2009 24.11.2009 02.10.2009 07.07.2009 07.05.2009 09.03.2009 18.02.2009 07.02.2009 03.02.2009 22.01.2009 22.12.2008 15.12.2008 30.10.2008 29.10.2008 03.10.2008 05.09.2008 04.09.2008 03.09.2008 02.09.2008 28.08.2008 19.08.2008 12.08.2008 07.08.2008 21.07.2008 18.07.2008 19.06.2008 30.05.2008 16.05.2008 06.05.2008 05.05.2008 23.04.2008 09.04.2008 03.04.2008 03.04.2008 19.03.2008 07.03.2008 26.02.2008 22.02.2008 19.02.2008 14.02.2008 13.02.2008 12.02.2008 07.02.2008 02.02.2008
|
Fréttabréf íbúa í Leirvogstungu 22.02.2010
Mikil gróska er meðal íbúa í Leirvogstungu um þessar mundir en fréttabréf íbúa var borið í hvert hús í síðustu viku. Sífellt bætast fleiri íbúar í hópinn og er eftirtektarvert hversu gróskan er mikil miðað við ástandið í okkar litla landi. Með því að smella á fréttabréfið hér til hægri má hlaða því niður á rafrænu formi.
Það er alltaf eitthvað verið að gera smálegt í Leirvogstungu og setjum við hér til gamans myndir af brúnni okkar á Vesturlandsvegi, en Ístak vinnur af alúð við þær framkvæmdir og í síðustu viku var meðal annars unnið við uppsetningu handriða og vegriða á brýrnar tvær.
Að síðustu má nefna gleðiðlega frétt sem birtist í MBL 16. febrúar, en hún fjallaði meðal annars um að Mosfellsbær hefði bætt við sig íbúum og var það eitt af tveimur sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Það sem kannski vantaði í fréttina, er að þetta gerist þrátt fyrir að um 300 starfsmenn Ístaks fluttu burt á tímabilinu en þeir dvöldu í íbúðum fyrirtækisins að Tungumelum. Sjá fréttina hér.
Frekari upplýsingar um íbúasamtökin eru hér: http://www.leirvogstunga.is/ibuasamtok Smellið hér til að komast í upplýsingar og umræður á Facebook
Til baka |