22.06.2010
09.06.2010
27.05.2010
22.02.2010
13.01.2010
22.12.2009
11.12.2009
24.11.2009
02.10.2009
07.07.2009
07.05.2009
09.03.2009
18.02.2009
07.02.2009
03.02.2009
22.01.2009
22.12.2008
15.12.2008
30.10.2008
29.10.2008
03.10.2008
05.09.2008
04.09.2008
03.09.2008
02.09.2008
28.08.2008
19.08.2008
12.08.2008
07.08.2008
21.07.2008
18.07.2008
19.06.2008
30.05.2008
16.05.2008
06.05.2008
05.05.2008
23.04.2008
09.04.2008
03.04.2008
03.04.2008
19.03.2008
07.03.2008
26.02.2008
22.02.2008
19.02.2008
14.02.2008
13.02.2008
12.02.2008
07.02.2008
02.02.2008

 

 


Reyni að bjóða lægra verð en stóru búðirnar
28.10.2007

Karl í BYMOS við afgreiðsluborðið. Hann býður upp á alla helstu smávöru til bygginga.

 

„Ég fylgist mjög vel með verðlagningu stóru búðanna og reyni að bjóða alltaf lægra verð. Svo gef ég tilboð í stórinnkaup.“
 
Þetta segir Karl D. Björnsson eigandi Byggingavöruverslunar Mosfellsbæjar eða BYMOS eins og hún er kölluð. Hann hefur starfrækt verslunina í fjögur og hálft ár og hún er staðsett í Háholti 14, á móti Krónunni og í sama húsi og Snæland og Draumakaffi.
 
Hvaða vörur ertu með í búðinni?
„Ég er með alla helstu smávöru. Málningu, kítti, lím, skrúfur og bolta, ljósaperur, verkfæri, lítil heimilistæki, rafmagnsvörur, garðvörur og svo framvegis. Ég er ekki með neina efnissölu fyrir utan málninguna en flest annað er hægt að nálgast hér og styttra að skjótast hingað heldur en í næstu byggingavöruverslun sem er í Grafarholti.“
 
Eru viðskiptavinirnir aðallega úr Mosfellsbæ?
„Já, flestir koma úr Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Þetta er allskonar fólk, verktakar, þeir sem er að byggja sér hús eða að dytta að heima hjá sér.“
 
Hvernig er opnunartíminn?
„Verslunin er opin mánudaga til föstudaga frá 10-18 og laugardaga frá 10-16.“



Til baka